5.1.2007 | 23:29
Hellisheiðin!!
Enn einn áreksturinn á Hellisheiði! Hvenær ætla ráðamenn þessarar þjóðar að gera eitthvað í umferðaröryggismálum Hellisheiðar. Tvær akreinar í báðar áttir, aðskildar, hefðu komið í veg fyrir þennan árekstur. Áreksturinn var harður og kannski eigum við eftir að heyra í fréttum á morgun að afleiðingar hans hafi verið alvarlegri en við höldum. Kannski enn eitt banaslysið? Það þarf víða að gera eitthvað í þjóðvegakerfinu, en sú umferð sem er orðin um þennan veg er komin í sama magn eða meira og var þegar byrjað var á lagfæringum og tvöföldun Reykjanesbrautar, gleymum því ekki. Hvað þurfa margir að farast á þessari leið áður en eitthvað verður gert?
Engan sakaði í hörðum árekstri á Hellisheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.